
Аннотация
Hér segir frá óvæntu ævintýri Bagga. Og frammistaða hans var sannarlega ekki fyrirsjáanleg …
Bilbó Baggi var fullkomlega sáttur við fábrotið lífið í holu sinni. Þessi heimakæri Hobbiti yfirgaf helst ekki híbýli sín í Bagga-botni, ef nóg var að bíta og brenna. En dag nokkurn var knúið dyra og rólyndislífi hans raskað. Þar var kominn galdramaðurinn Gandalfur, í félagi við þrettán dverga. Vildu þeir fá Bilbó með sér í mikinn leiðangur og lét hann treglega tilleiðast. Endurheimta átti fjársjóð sem hinn ógurlegi dreki, Smeyginn, rændi dverganna forðum; sannkallað gull í heljargreipum …
Hobbitinn, forleikurinn að Hringadróttinssögu, kom fyrst út árið 1937 og hefur síðan selst í milljónum eintaka. Sagan er tvímælalaust ein af ástsælustu og áhrifamestu bókmenntum tuttugustu aldar.
Комментарии к книге "Hobbitinn"